Kleppur
11.07.2007 17:56:59 / kolli

Road trip !!!

Jæja jæja jæja, sjaldséðir eru hvítir fuglar..... eða eitthvað í þá áttina.

Orðið frekar langt síðan ég skrifaði hérna síðast og örugglega lengra en elstu menn muna. Ég ætla þó að bæta úr því núna og skrifa nokkrar línur. Ekki það að eitthvað merkilegt hafi gerst síðan síðast, eða eitthvað merkilegt sé að fara að gerast í nánustu framtíð. En hver veit. Og þó.

Aðalástæðan fyrir því að ég ákvað að leggja hérna orð í belg er sú að við Gunni ætlum að leggja líf og limi í hættu og skella okkur í smá road trip. Það kom í ljós um daginn að hvorugur okkar hafði keyrt hinn umtalaða hringveg svo við ákváðum að leggja veg undir dekk og keyra kvikindið. En auðvitað ætlum við að koma við á Króknum á leiðinni. Við fórum aðeins að leggja á ráðin og á endanum kom þetta gífurlega skipulagða plan:

 Föstudagur: Leggja af stað úr Rvk. eftir vinnu, eða um kl. 17, og keyra svona um það bil þangað til við sofnum í vegkantinum.

Laugardagur: Vakna í vegkantinum, keyra til Húsavíkur og skoða reðursafnið, keyra svo á Krókinn og djamma um kvöldið.

Sunnudagur: Vakna vonandi ekki mikið þunnir og keyra til Reykjavíkur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 22:44:50 / kolli

Ekki dauður enn

Jæja, þá held ég að það sé kominn tími á smá blogg. Hefur þó lítið marktækt gerst þannig að þetta verður bara stutt að vanda.

Er byrjaður að vinna hjá Toyota, eða byrja á morgun, og verð sennilega að vinna þar í allavega ár, sem þýðir að ég verð í borginni í sumar. Verður sannarlega tilbreyting að vera ekki á Króknum, enginn fótbolti uppá nöfum og engin vínsala í Smáragrundinni fyrir mig þetta sumarið. En þeir sem vilja versla af mér áfengi geta þó kíkt suður og komið í Kringluna, verð þar eitthvað á laugardögum ásamt fleiri skagfirðingum. :lol:

Hef ekkert farið norður síðan um jólin og er farinn að velta fyrir mér hvað er búið að breyta miklu síðan þá. Síðast þegar ég kom var búið að færa götuna fyrir neðan Hlíðarkaup án minnar vitundar og komst ég að því þegar ég var vinstra megin við bílinn á móti 8| Ætla nú að bæta aðeins úr þessu ferðaleysi mínu og kíkja norður um páskana.

Þá held ég að þetta sé komið nóg í bili, skrifa vonandi aftur fljótlega. (líklega eftir 2-3 mánuði :haha: )

Og já... komst að því um daginn að ég á bæði bróðir og systir hérna fyrir sunnan, en meira um það seinna....


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 20:37:18 / kolli

....

FRAMLENGING........... ÁFRAM ÍSLAND !!!!!!!!!!!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 03:32:03 / kolli

Nýjaársheiti?

Jæja, hverjir ætla að strengja áramótaheit? Einhverjar góðar hugmyndir?

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 22:38:23 / kolli

Hvíl í friði Binni minn

Jæja, ætla að setja nokkur orð hérna inn. Hefur þó fátt merkilegt gerst síðan síðast. Skellti mér þó í bæinn á laugardaginn og endaði á Players, skemmti mér helvíti vel þetta kvöld. Sorry Gunni minn... kem með þér á Hressó næst :haha:

Lítið framundan fyrir utan það að ég og Gunni förum líklega norður um helgina, ætlum á jarðarförina Binna gamla ef hún verður á laugardaginn. Blessuð sé minning hans.

Ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra, ætla þó að hafa með eina minningargrein.

 

Jæja Brynleifur minn, þá hefur þú yfirgefið okkur og við hugsum til þín með söknuð í hjarta. Við fréttum það um kvöldið að þú værir farinn og fundum strax til söknuðar. Það er erfitt að sætta sig við þetta á meðan það er auðvelt að minnast góðra stunda, því þær voru margar og á hverju strái. Í hvert skipti sem við hittum þig varstu hress og alltaf var stutt í húmorinn hjá þér til að kæta aðra. Þú varst stór partur af þessu frábæra andrúmslofti sem var í veitunum þar sem við unnum saman og sjáum við nú eftir því að hafa ekki unnið þar lengur. Við vildum óska að við gætum hitt þig einu sinni enn til þess að þakka þér fyrir allt sem þú gafst frá þér, vinskap, hlýhug, velvild og svo margt margt fleira. Við vitum að þú ert kominn á betri stað núna og þú átt það svo sannarlega skilið, en samt er svo erfitt að sætta sig við veruleikann. Þú ert farinn og kemur ekki aftur.

Hafðu þökk fyrir allt og allt.

 

Kolbeinn Helgi Gíslason
Ingvar Gýgjar Sigurðarson
Gunnar Davíð Jóhannesson


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 16:57:56 / kolli

Jæja, kominn tími á nýtt blogg

ákvað að skella inn nokkrum punktum um hvað hefur verið að gerast hjá mér hérna fyrir sunnan, svona ef einhver nennir ennþá að lesa þetta.

  • Komið nýtt sófasett í höllina....
  • ...og nýr sjónvarpsskápur
  • kíkti í bæinn þar þar síðustu helgi og hitti fullt af liði sem ég hef ekki séð lengi
  • sömu helgi kom Kalli í heimsókn og keypti sér bíl (sagði þér að geitungurinn hefði farið þarna ofan í :lol: )
  • Hákon átti afmæli og ég gaf honum bol í afmælisgjöf... hann var ekkert hrifinn af áletruninni: I can't even THINK STRAIGHT
  • ég byrjaði að vinna í "Skagfirðingabúð" fyrir 3 eða 4 helgum síðan og hitti aftur nokkra gamla vinnufélaga frá "Austurríki"
  • Fór í póker á föstudagskvöldið, vann ekki en var ágætlega nálægt því
  • Hákon setti reykskynjarann í gang aftur, veit samt ekki hvernig hann fór að því, það var enginn reykur og hann varla byrjaður að elda, held að reykskynjarinn sé farinn að finna á sér þegar Hákon ætlar að elda og láti mig bara vita svona til öryggis ;)
  • fer norður á morgun
jæja, nóg komið af punktum í bili, læt heyra í mér aftur einhvern tímann fyrir jól :haha:
og endilega látið skoðun ykkar í ljós í sambandi við virkjunarframkvæmdir í skagafirði.

Þangað til næst...

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 16:30:36 / kolli

Ný könnun!!!

endilega svarið þessari könnun, og ef þið viljið tjá ykkur eitthvað frekar um málið er ykkur velkomið að setja það í comment

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 19:55:06 / kolli

Hví þá?

Tvær vikur búnar í skólanum og tvö próf búin, ágætis nýting það. Annars gengur bara allt eftir áætlun hérna syðra, nema þegar Hákon reynir að elda og setur reykskynjarann í gang :S
Hef ekki bloggað lengi, sennilega af því að það skoðar enginn þessa síðu, sem er sennilega út af því að ég nenni aldrei að blogga.... þannig að þetta er eiginlega orðinn hálfgerður vítahringur :$
Er farinn að versla aðeins í Melabúðinni, sem er by the way minnsta búð sem ég hef séð en samt með sama hillupláss og skaffó..... eða svona næstum því. Ætti að vera svona einstefna í gegnum alla búðina eins og í IKEA. En þetta er samt skárra en að versla í 10-11 í Hjarðarhaga, sem væri alveg ágætis búð ef hún væri ekki dýrasta búðin í Reykjavík....
Og svona í lokin áður en ég skrifa yfir mig, væri ágætt ef einhver kæmi með hugmynd af könnun til að setja hérna inn... nenni ekki að hugsa hana upp sjálfur :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 14:53:59 / kolli

Á suðurleið

Jæja, þá er síðasti vinnudagurinn búinn, ég búinn að troða ofan í töskur og ekkert eftir nema að setjast uppí bíl og bruna suður. Það er nú samt hálfgerð synd að fara úr Skagafirðinum loksins þegar það kemur gott veður. En skólayfirvöldum þarna syðra er nú sama hvernig veðrið er hérna fyrir norðan þannig að ég get lítið sagt við því.
Hef nú bloggað lítið í sumar, enda hefur ekki margt merkilegt gerst. Einna helst er að nefna versló og Drangeyjarferðina sem ég fór í um síðustu helgi. Annað merkilegt hefur nú ekki gerst. Þetta hefur verið frekar rólegt sumar í vínbúðinni, auðvitað fyrir utan vikuna fyrir landsmót hestamanna og versló, en föstudagurinn fyrir landsmót var hvorki meira né minna en stærsti söludagur frá upphafi. Ekki hefði verið amalegt að vera á prósentu þann daginn.
Jæja, held að ég láti þetta gott heita, læt líklega heyra í mér aftur fljótlega þarna fyrir sunnan en þangað til bið ég bara að heilsa og þakka öllum fyrir gott sumar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 11:57:14 / kolli

Sá þetta á einhverri síðu

K: You like to try new things
O: You love foreplay
L: You always make other people smile when you smile
B: You are always fun when it comes to meeting new people
E: A Hottie
I: You Hate Liers
N: You'r great in bed
N: You'r great in bed

Hérna er svo heildin ef þið viljið sjá hvað kemur út hjá ykkur.

 A: You have trouble trusting people
B: You are always fun when it comes to meeting new people
C: youre wild and crazy
D: You are popular with all types of people
E: A Hottie
F: People totally adore you
G: You are very friendly and understanding
H: You have a very good personality and good looks
I: You Hate Liers
J: Everyone loves you
K: You like to try new things
L: You always make other people smile when you smile
M: Success comes easily to you
N: You'r great in bed
O: You love foreplay
P: You are very friendly and understanding
Q: You are a hypocrite
R: You are beautiful, and sexy
S: People think you are so sexy
T: You are one of the best in bed
U: You are really chill
V: You are not judgemental
X: You never let people tell you what to do
Y: you make every experience great
Þ: You´re fkn hot
Æ: You are outgoing person
Ö: You´re wild in bed


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 14:57:22 / kolli

Who's the lucky one?

Hver verður númer 3000 ??? :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 19:52:57 / kolli

Betra er seint en aldrei

Já ég veit, það er langt síðan ég bloggaði síðast, svona um það bil tveir mánuðir. En eins og maðurinn sagði, betra er seint en aldrei.

Ástæðan fyrir þessu bloggleysi mínu er sú að ég hef haft í nógu að snúast. Ekki það að það hafi verið neitt mikið að gera í vinnunni, nema kannski vikuna fyrir landsmót hestamanna. Sú vika var reyndar klikkun og var föstudagurinn um landsmótshelgina hvorki meira né minna en stærsti dagur frá upphafi. En svona burt séð frá vinnunni var alveg nóg að gera hjá mér fyrir þetta landsmót þar sem björgunarsveitirnar hérna í nágreninu voru með gæslu á mótinu og ég tók það að mér að fá fólk á vaktir fyrir Skagfirðingasveit. Það versta við þetta tímaleysi mitt er samt að ég hef ekkert komist í bolta í sumar og er þess vegna ekki ennþá kominn í gott form. Það stendur nú samt til bóta og ég get vonandi komið mér í form fyrir veturinn með því að vera duglegur að mæta í boltann hér eftir.

Um helgina skellti ég mér í fjallaferð og var það bara ágætt að komast aðeins í fjallaloftið, fyrir utan það að það snjóaði á okkur á laugardagsmorguninn, en þrátt fyrir það var þetta bara ágætis ferð.

Restin af sumrinu fer svo í vinnuna, boltann, fjallaferðir og kannski eitthvað fleira sniðugt. Veit nú samt ekki hvort ég eigi eftir að blogga mikið í sumar en reyni samt að setja eitthvað hérna inn áður en veturinn kemur aftur. En ég kveð allavega þangað til næst.


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 11:45:00 / kolli

Kominn norður til að vera

Jæja, þá er maður kominn norður í menninguna. Fer reyndar suður á fimmtudaginn til að ná í einkannirnar mínar en kem samt norður aftur sama dag. Það hefur lítið merkilegt gerst síðan síðast þannig að ég var að hugsa um að taka veturinn aðeins fyrir og fara yfir það sem stendur uppúr.

Við skulum byrja á því sem fór í taugarnar á mér í vetur:

Fyrst ber að nefna vesenið í kringum jöfnunarstyrkinn. Það var þannig að þeir áfangar sem ég fékk metna, eða “átti” að fá metna voru bara ekkert settir inn hjá mér, hvorki sem áfanga sem ég var í né áfanga sem ég var búinn með. Bara eins og þeir kæmu mér ekkert við. Það leiddi af sér að ég var bara skráður í 10 einingar en þarf 12 til að fá jöfnunarstyrkinn þannig að þetta kostaði spjall við áfangastjórann eða hvað sem það kallast þarna. Þetta komst svo ekki í lag fyrr en eftir þriðja spjallið við hann því hann byrjaði að setja þetta inná vitlausa önn og eitthvað vesen. Þetta endaði samt allt vel og ég fékk styrkinn.
Svo gerðist það allt í einu að þeir áfangar sem ég átti að fá metna á fyrri önninni komu inn á stundatöfluna hjá mér á seinni önninni þannig að áfangar sem áttu að vera komust ekki fyrir. Sem betur fer tók ég eftir þessu og gat fengið þetta leiðrétt, því annars hefði ég misst af áföngum og þurft að vera í tvöföldum skóla í einhverjar vikur næstu önn. Þetta var nú meira vesenið.

Næst koma gömlu kellingarnar í vinnunni. Ekki skil ég hvernig nokkur persóna getur talað svona mikið um “KAFFI”:S. “ég er að hugsa um að fá mér kaffi, ætlar þú að fá þér kaffi?, við skulum fara og fá okkur kaffi, hvernig ætli kaffið sé í dag?, þetta er bara mjög gott kaffi, er kaffi ekki bara ágætt?, þetta er yndislegt kaffi, kaffi kaffi kaffi, kaffi þetta og kaffi hitt!!!!! Og ég er alls ekki sá eini sem var kominn með nóg af þessu kaffitali.

Svo síðast en ekki síst eru allir hálfvitarnir sem hafa enga samvisku og hugsa bara um sjálfa sig, eða bara hugsa ekki neitt. Ef maður missir dós og það kemur gat á hana þá lætur maður starfsfólkið vita svo það geti þrifið þetta upp.... maður stingur dósinni ekki bara inní næstu bjórstæðu, eða undir næsta ofn. Og það er alveg ótrúlegt hvað fólk hugsar stundum lítið. Eins og að taka tvær kippur af bjór úr hillunni, önnur ofan á hinni, halda bara um neðri kippuna og BEYGJA SIG SVO FRAM !?!?!?!? Auðvitað sér það hver einasti maður með eitthvað vit í kollinum að efri kippan dettur í gólfið ef ekkert heldur við hana og maður hallar þessu 90°. Sumt fólk hugsar bara ekki.

En þá er nú nóg komið af pirringi. Þetta kerfi í bíladeildinni er til dæmis mjög þægilegt. Þá er hver áfagni 1-2 vikur, próf í lok vikunnar og svo bara næsti áfangi. Þetta leiðir reyndar af sér að maður má strangt til tekið ekki missa 1 dag úr, en þetta veldur því líka að það eru engin lokapróf þannig að ég var alveg búinn í skólanum 27. apríl.

Svona yfir heildina litið þá var þetta bara alveg ágætur vetur, en þó get ég ekki neitað því að það er óneitanlega gott að vera kominn í sveitasæluna fyrir norðan.

Planið fyrir sumarið er svo að vinna, fara í fjallaferðir, koma mér í form og eflaust eitthvað fleira sem gerir ekki boð á undan sér. Held nú að ég sé búinn að skrifa alveg nóg í bili, hittumst hress í góða veðrinu í sumar.:haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 19:07:52 / kolli

Niðurstöðurnar úr skoðanakönnuninni


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 19:44:07 / kolli

Ágætis helgi

Ég skellti mér norður í menninguna um helgina og var helgin bara ágæt. Fór norður á föstudagskvöldið með Gunna en einhverra hluta vegna var lítið aðhafst það kvöld. Byrjuðum á að horfa á eitt stykki dvd mynd en eftir það leystist hópurinn eiginlega upp. Við sem eftir vorum skruppum á barinn og enduðum svo í dönskukennslu á Kaffi krók. Þetta var svona frekar rólegt kvöld.

Á laugardaginn lenti ég svo í útkalli uppá Langjökul og er þetta önnur helgin í röð sem kem norður og lendi í útkalli þangað. Um miðnætti var búið að ganga frá eftir útkallið og þá kíktum við á lífið í bænum. Þessu kvöldi var eytt á rúntinum og inná barnum og hafði Kolli fagri einhver skrítin áhrif á mig og allt í einu langar mig í Ford  8|

Á sunnudaginn var lífinu svo tekið með ró og gerði ég mest lítið þann daginn fyrir utan að rúnta og horfa á hellisbúann. Í dag fór ég svo suður með Ella frænda og er stefnan tekin á Krókinn aftur eftir hálfan mánuð. Í það skiptið verður dvölin þó aðeins lengri, svona um það bil eitt sumar.

Held að þetta sé komið nóg í bili, er eiginlega hættur að nenna þessu. :$


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2